Tag Archives: Námskeið
Sjálfbærar ofanvatnslausnir – Áhugavert námskeið

Sjálfbærar ofanvatnslausnir – Áhugavert námskeið

Sjálfbærar ofanvatnslausnir hafa verið að riðja sér til rúms á undanförnum árum. Með sjálfbærum ofanvatnslausnum er átt við ýmsar lausnir til að meðhöndla ofanvatn af götum, stígum, húsþökum og öðrum þéttum flötum með umhverfisvænum og sjálfbærum hætti í stað þess að leiða það ómeðhöndlað beint í næsta viðtaka.
Á námskeiðinu verður hinum ýmsu lausnum gerð skil, [...]

Read more
Námskeið fyrir sumarstarfsmenn

Námskeið fyrir sumarstarfsmenn

Undanfarnar vikur hefur Horticum menntafélag haldið námskeið fyrir starfsmenn sem sinna daglegri umhirðu grænna svæða. Áherlsuatriði námskeiðanna eru fagleg vinnubrögð, meðferð véla og verkfæra auk almennra öryggisatriða og líkamsbeitingar. Nokkur námskeiðanna voru haldin í samstarfi við Heilsuvernd þar sem sérfræðingar í réttri líkamsbetingu og starfsöryggi héldu fyrirlestur. Garðyrkjudeildir Reykjavíkurborgar, Garðabæjar, Kópavogs og Faxaflóahafna eru meðal [...]

Read more
Garðyrkjunámskeið í samstarfi við Endurmenntun HÍ.

Garðyrkjunámskeið í samstarfi við Endurmenntun HÍ.

Matjurtir (22. og 24. maí)
Garðverkin (dagsetning liggur ekki fyrir)
Staðbundin jarðgerð (8. apríl)
Trjárækt á sumarhúsalóðum (19. apríl)
Kryddjurtir (27. apríl)
Rósarækt (4. og 6. maí)
Safnhaugagerð. (17. og 18. maí)
Sjá nánar á vef endurmenntunar: www.endurmenntun.is

Read more
Fagleg umhirða trjágróðurs

Fagleg umhirða trjágróðurs

(19. mars 2010)
Námskeiði í faglegri umhirðu trjágróðurs lauk í gær. Góð þátttaka var á námskeiðinu og voru nemendur m.a. frá Orkuveitu Reykjavíkur, Landsvirkjun, Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastdæma, Reykjavíkurborg, Sorpu o.fl. Þátttakendur voru ángægðir með uppbyggingu og innihald námskeiðsins og ekki spillti afar sólríkt og gott veður fyrir. Kennslan fór fram í Ræktunarstöðinni í Fossvogi þar sem [...]

Read more

Námskeið vormisseris 2010 – Endurmenntun Háskóla Íslands

Horticum menntafélag og Endurmenntun Háskóla Íslands standa fyrir ýmsum spennandi námskeiðum á sviði garðyrkju og umhverfis og hafa námskeið vormisseris 2010 nýlega verið kynnt á vef Endurmenntunar www.ehi.is . Sem dæmi má nefna: námskeið í safnhaugagerð, rósarækt, krydd- og matjurtarækt, trjárækt á sumarhúsalóðum auk námskeiðs um helstu umhirðu- og viðhaldsverkefni garðeigandans. Einnig má nefna námskeiðið [...]

Read more